föstudagur, febrúar 20, 2004

Sick as a dog....Got to vomit.....!

Haukurinn er veikur líkt og félagi hans illur læknir (dr. Evil) sem á heiðurinn að ofanritaðri fyrirsögn. Kvefpestin hefur náð tangarhaldi á Hauknum og brýtur niður varnir líkama hans með tilheyrandi stíflum og hóstum. Haukurinn berst á móti með miklum hetjumóð og nýtir til þess vopnasafn það er hann og frúin hafa byggt upp á stuttum tíma hér í landi dana. Haukurinn leysir upp 'slimløsende hostemiddel' í vatni og gæðir sér á. Vökvinn rennur eigi ljúflega niður en styrkir, bætir og kætir. Smurður í Vicks, með trefil og súkkulaðilíki í bolla situr Haukurinn eftir súr í broti og þrjóksast í gegnum skólabókmenntir sínar. Þeim bardaga er eigi víst að Haukurinn beri sigur úr býtum.

Haukurinn skemmti sér konunglega yfir góðri ræmu í gær. TV 3+ sýndi í gærkveldi þá stórgóðu mynd "Ace Ventura-Pet detective" og fór Ace á kostum. Haukurinn er farinn að trúa þeim sögnum að hláturinn lengi lífið. Haukurinn lengdi líf sitt því um a.m.k. 15 ár í gærkveldi. "Finkle is Einhorn. Einhorn is Finkle. Einhorn is a man....!" HAHAHAHAHAHA

Haukurinn sá á dögunum leik drengjanna frá Liverpool gegn lið íbúa Portsmouth. Boðið var upp á hina bestu skemmtun, þar eð leikurinn var hraður og skemmtilegur. Það eina sem Haukurinn sá að leik sinna manna var að þeir virka eigi nógu sannfærandi. Það hreinlega vantar drápseðlið eða sigurhungrið í þá, því það er ekki gott til eftirspurnar að eiga yfir 10 marktækifæri og ná einungis að nýta eitt einasta þeirra. En nóg um það.

Haukurinn hefur talað!

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Segðu mér allt, end ópen jor hart!

Haukurinn er skrifandi. Fátt er að frétta af vígvelli þeim er danmörk heitir. Haukurinn og frú sækja menntun, elda, sofa og standa í uppvaski.

Haukurinn kaus að veita degi heilags Valentínusar enga athygli þar eð téður dagur er af kaþólsku bergi brotinn og í núverandi mynd ættaður frá bandaríkjum norður-ameríku. Haukurinn telur sig eigi til hvorugs þessara hópa og mun því eigi halda upp á hann. Hauknum er spurn hvort að þessi þróun í útfærslu amerískra siða, venja og hátíðisdaga eigi engan enda að taka. Land elds og ísa hefur verið undirlagt í allskyns uppákomum sem allar eiga rætur sínar að rekja til BNA, þ.á.m. hrekkjavaka, valentínusardagurinn og þakkargjörðarhátíðin. Það er hreinlega forkastanlegt að landar vorir séu einatt að reyna að selja okkur útjaskaðar hátíðir annarra þjóða. Haukurinn veltir því fyrir sér hvenær komi að Ramadam, afmælishátíð Japanska keisarans (sem er 23. desember og því þyrfti heilagur Þorlákur að víkja úr sæti) eða degi heilagrar þrenningar sem haldið er upp á að sið grísk-kaþólsku rétttrúnaðarkirkjunnar.

Haukurinn sá í fréttaritum að heiman að búið sé að velja evróvisjónfara Íslands, og að sá hinn sami verði Jónsi í svörtum fötum. Haukurinn verður að viðurkenna að honum er illmögulegt að skilja hvers vegna RÚV getur eigi ákveðið sig hvernig skuli fara að þessu vali. Síðasta ár minnir Haukinn endilega að Girbitta hafi borið sigur úr býtum í einskonar forkeppni sem byggt var á þátttöku almennings. Haukurinn skorar á RÚV að ákveða sig endanlega um hvort skuli valið því öll þessi óvissa skapi ekkert annað en óvilld almennings.

Haukurinn hefur talað!