föstudagur, desember 13, 2002

Skandall!

Kæru lesendur bloggheima, hættir hvítaruslsins hafa heldur betur gert vart við sig á blogginu síðustu dægur. Haukurinn rakst á grein á www.svanson.net þar sem Svanson ver sig fyrir "hárbeittum" gróusögum betu rokk, ókrýndrar drottningar bloggruslahauganna. Grein betu snýst að mestu leyti um þá sögu "áreiðanlegrar heimildar" að Svanson hafi haft þann háttinn á að fitla við sjálfann sig í herbergi sínu á heimavistinni á menntaskólaárum sínum! Hólí Sjitt!!! Þegar það verður fréttnæmt að karlmenn rúnki sér þá telur Haukurinn víst að frjósa muni í helvíti!

Hauknum finnst einnig fyndið að manneskja sem komst fyrst fram í sviðsljósið með því að mæta í viðtöl reglulega og gorta af eigin kynlífi skuli ætla að setja sjálfa sig á þetta háann hest! Talandi um að sofa sér leið á toppinn!

Svanson gerði hið eina rétta í stöðunni, hann varði sig sem best hann gat og sýndi fram að siðferðislega brenglun téðrar betu. Svanson á skilið lof í lófa fyrir vel unnin verk!

Haukurinn hefur talað!