sunnudagur, maí 14, 2006

You'll never walk alone!
Þvílíkur leikur! Annað árið í röð sat Haukurinn sveittur á barmi taugaáfalls fyrir framan sjónvarpsskjáinn. Þvílíkur leikur! Annað eins hefur ekki sést, tja...síðan 25. maí 2005. Haukurinn spurði sig þeirrar spurningar, eftir sem leið á leikinn, hvort að hans elskaða lið gæti ekki einu sinni bara unnið 1-0 og þannig sparað Hauknum hjartaþolæfinguna.
Haukurinn óskar öllum Liverpool mönnum nær og fjær til hamingju með bikarsigurinn.
Haukurinn hefur talað!