miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Við erum rauðir, við erum hvítir....(en við erum svo sannarlega ekki brúnir múslimar)
Haukurinn skilur fyrr en skellur í tönnum. Ísbjarnardrengurinn Íkinot og Óli Olía halda uppi réttmætri gagnrýni á 'skriftir' Hauksins, því verður Haukurinn að bæta um betur og bregða brandinum á loft og stinga á kýlum.
Danir eru heldur súrir þessa dagana. Þeir eru einkum súrir vegna þess að þeir eru farnir að ala upp verðandi hryðjuverkamenn fyrir alla þá sósíal peningana sem þeir eru að dæla út í danskt samfélag. Þessir ungu öfgamúslimsku drengir sem hafa verið handteknir hérlendis síðustu daga hugðust sprengja nokkrar bombur en voru handteknir áður en til þess kom. Þessar handtökur koma svo í beinu framhaldi af mikilli umræðu í dönskum fjölmiðlum um vandamál tengd samskiptum hins kristna danska meirihluta og hins innflutta múslimska minnihluta.
Fyrir stuttu síðan brutust út mikil mótmæli vegna ákveðins atviks og þeim fylgdi stríður straumur yfirlýsinga frá hinu múslimska samfélagi. Þannig er mál með vexti að einhverjum snillingi hjá Jyllandsposten datt það í hug, að það væri augljóslega alger snilldarhugmynd að birta í blaðinu myndir af spámanninum Múhameð, teiknuðum af ónefndum listamanni, sem fylgdarefni með frétt um nýja bók um islam. Að því er virðist þá er það með öllu bannað samkvæmt Kóraninum og því urðu múslimar fúlir - þó svo að Haukurinn hafi heyrt það að Kóraninn banni aðeins múslimum sjálfum að teikna Múhameð, og það aðeins eftir að hann varð að guði, en þessar elskur eru nú ekkert að víla svoleiðis staðreyndabákn fyrir sér. Þessum myndum fylgdu hótanir, og hótanir um hótanir, og sambærileg róstur frá hinum almenna dana. Hryðjuverkahótanir renna víst ekki vel niður með rauðum pylsum og köldum carlsberg.
Haukurinn hefur hins vegar átt í vandræðum með að skilja þessa vini okkar úr miðaustri. Þeir flytja búferlum til eins frjálslyndasta lands í heimi, þar sem tekið er á móti þeim með nánast fríu húsnæði og fullt af peningum í formi styrkja og bóta, og byrja nánast samstundis að gagnrýna lífshætti síns nýja lands, kvarta yfir því að þurfa að búa í landi trúleysingja og fremja allskyns óþekktarverk.
Þegar Haukurinn var alinn upp, þá var honum kennt að vera kurteisin uppmáluð á meðan maður dvaldist sem gestur í annarra manna heimilum. Hann settist ekki niður við eldhúsborðið og kallaði húsfreyjuna hórkerlu, heimtaði vasapening af húsráðendum eða sló húsbóndann í hausinn. Sama máli gegndi um þegar Hauknum var boðið í afmælisveislur í gamla daga. Ef einhver krakkanna hefði gengið um berjandi, móðgandi eða stelandi þá hefði hann hreinlega verið sendur heim á leið.
Haukurinn hefur talað!

mánudagur, október 31, 2005

Tölfræði er fyrir homma.....

Haukurinn er sokkinn djúpt í aðhvarfsgreiningar og fylkjareikning. Haukurinn er ekki gæddur þeim hæfileikum að geta synt skriðsund í gegnum þessa súpu. Haukurinn treður sem stendur marvaða og vonast eftir því að ná til lands með hundasundshæfileikum sínum.

Haukurinn hefur talað!