mánudagur, febrúar 12, 2007

"America national sport is called baseballs. It very similar to our sport, shurik, where we take dogs, shoot them in a field, and then have a party."
Borat Sagdiyev
Haukurinn hefur ávallt haft áhuga á málefnum útlendinga, einkum þar eð hann er sem stendur útlendingur. Honum brá heldur við þegar hann las það í einu hinna fjölmörgu fríblaða hérlendis að Grænlendingar í Árósum ættu um sárt að binda þessa dagana sökum sífelldra kynþáttafordóma sem þeir yrðu fyrir þar í bæ. Þar eð margur Íslendingurinn hefur oft haft að gamni hina landlægu áfengissýki og meðfylgjandi vandamál sem einkenna Grænland og landsins íbúa var Hauknum nokkuð brugðið þegar hann las neðar í greininni. Málið er að þeir sem einkum leggja Grænlendinga í einelti sökum kynþáttar þeirra og halda uppi kynþáttafordómum í þeirra garð eru einkum innflytjendur af sómölskum og miðaustulenskum uppruna - s.s. it is 'cos I is black. Hauknum þykir fokið í flest skjól þegar blámenn, fíkjuætur og aðrir þess háttar stuðmenn eru farnir að útskúfa öðrum manneskjum sökum kynþáttar þeirra.
Drengnum heilsast vel, fyrir þá er vilja vita, vex og dafnar. Fyrir stuttu tók hann út hamskipti líkt og snákur, fyrst fylltist andlit hans af rauðum dílum og bólum ýmiskonar, þarnæst mynduðu bólurnar hárauðar skellur um allt andlit hans sem vessuðu sumstaðar gulleitum vökva þar til nú fyrir stuttu að allt ógeð hvarf eins og dögg fyrir sólu og drengurinn fékk aftur sínar margrómuðu sléttu barnaspikskinnar.
Klan Hauksins kom til Álaborgar nýverið og dvaldist vikustund. Haukurinn hafði gott af hittingnum, sem og kerla hans og erfðaprinsinn, og kann klaninu góðar þakkir fyrir góðar stundir. Hann er samt sem áður ekki ennþá búinn að bora upp hillurnar né festa bókaskápinn við vegginn á gangnum.
Eins og vanalega hefur Haukurinn hafið næstu önn náms síns, en öfugt við fyrri skrif ætlar hann ekki að kvelja lesendur sína með væli og voli heldur halda því fyrir sig - fátt betra en að gráta einsamall inni á baði í myrkrinu.
Haukurinn hefur talað!