þriðjudagur, október 29, 2002

Heimaleikfimi

Kæru lesendur! Haukurinn biðst hér með afsökunar á skriflegri leti sinni, honum var gert það ljóst af einum lesanda að efni hans sé einum of gott til þess að halda því fyrir sjálfan sig - því sé kominn tími til að breyta um betur og auka við greinaskrif!

Haukurinn hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að Þórarinn V. fyrrverandi forstjóri Símans hafi í samstarfi við Jóhannes í Bónus og Ron Jeremy, hafi staðið að baki slæmri póstkosningu Samfylkingarinnar og einnig valdið sárasótt lýðveldishetjunnar Jóns Sigurðssonar!

Haukurinn var að lesa það á vísir.is að sovétskir ráðamenn hafi logið um þann tíma sem geimtíkin Laika hafi lifað í geimflauginni - svo virðist sem hún hafi aðeins lifað í nokkra tíma en ekki daga eins haldið hafði verið fram! Ef ekki er hægt að treysta sovétskum ráðamönnum hverjum er þá hægt að treysta.....!

Haukurinn hefur fátt annað að segja í dag......

Haukurinn hefur talað!