fimmtudagur, mars 30, 2006

"If I wanted to have an easy job...I would have stayed at Porto - beautiful blue chair, the Uefa Champions League trophy, God, and after God, me. "
Jose Mourinho, talandi um nýja starfið sitt hjá Chelski...
Óðinn hafði kannski eitthvað til síns máls þegar hann sagði að flugmenn væru ekki þeir sem sæju um að fljúga flugvélunum - heldur væru það flugumferðarstjórarnir.
Obbossí, kannski er það ekki bara íslenskt efnahagslíf sem stefnir í óefni? Ætli þetta valdi álíka verðbólgu eins og heima? Kannski Børsen hætti þá loksins að benda á Ísland sem einhverskonar óþekkan krakka sem neiti að spila eftir leikreglunum....
Maðurinn er náttúrulega brandari. Ætli þetta hafi áhrif á viðskiptasamningaviðræður við Kínverja í framtíðinni? Haukurinn spyr sig.....
Jæja, er þetta framtíðin í barnauppeldi? Belgíska aðferðin?
Ha, ha, ha, ha! Frode Øverli er snillingur!
Haukurinn hefur talað!

sunnudagur, mars 26, 2006

"I think I've lost alot of my gay fans to Gavin Henson. It's a shame beccause I really love them." - David Beckham
Haukurinn hefur átt góðar stundir þessa helgina. Hann skemmti sér ógurlega á laugardag, enda fátt annað betra en að sjá liðið sitt vinna nágrannaliðið. Sú staðreynd að fyrrum júnætet leikmaður skoraði fyrsta markið með sjálfsmarki gerði sigurinn ennþá sætari. Ætli það sé ekki bara best fyrir þá Nevill bræður að halda sig við þá iðju að elda spaghettí fyrir Becks?
Danir eru eilítið súrir út í einn hinna fimm fræknu bænapresta sem fóru um miðausturlönd með myndasögur og skáldsögur. Sá hinn sami ýjaði að því í viðtali við franskan fréttamann, að hann sæi ekkert að því ef einhverjir lukkuriddarar sprengdu Naser Khader í loft upp. Khader þessi er þingmaður de Radikale, og er talinn einn 'vestrænasti' múslimski framámaðurinn í dönsku þjóðlífi. Múslimar, einkum þeir sem teljast herskáir, hafa löngum séð hann sem svikara við málstað sinn og menningu.
Á sama tíma, og það er erfitt að vera múslimi í Danmörku, er það einnig ómögulegt að vera kristinn í Afganistan. Hauknum finnst nógu erfitt að vera Íslendingur í Álaborg.
Haukurinn er búinn að panta sér miða.
Haukurinn hefur talað!