föstudagur, ágúst 05, 2005

Ísland - best í heimi!

Haukurinn er handviss um að Ísland sé best í heimi. Eigi eingöngu flykkjast íslenski peningaaðallinn út um lönd til þess að vinna landvinninga (sem þó aðeins þeir græða eitthvað á..) heldur eru mættir heilu herskararnir af skítugum hippum...afsakið...einörðum mótmælendum utan úr heimi til þess að berjast fyrir landinu okkar. Þeim fylgja einhver slæðingur af íslenskum leikbrúðumeisturum....fyrirgefið....mótmælendum sem leggja svo hönd á plóg við skipulagningu nýaldar hryðjuverka....afsakið...friðsamlegra mótmæla. Þetta land okkar er svo frábært að við þurfum ekki einu sinni sjálf að hafa fyrir því að berjast fyrir því....eða vinna á því...flytjum bara inn mótmælendur úr öllum skítugum kommúnum sem finnast á meginlandinu...afsakið...háskólum og finnum svo harðduglega menn sem eru tilbúnir að vinna fyrir lúsarlaun...afsakið....sambærileg laun og íslenskir iðnaðarmenn og fyllum alla stóriðju og iðnað af þeim. Þetta er Ísland í dag.
Haukurinn hefur talað!