miðvikudagur, október 08, 2003

Sigur hins germanska kynstofns!

Loks eru yfirburðir hins germanska kynstofns staðfestir! Haukurinn gleðst mikinn í dag yfir úrslitum í ríkisstjórakosningum í Kaliforníu í nótt. Austuríska Eikin, Arnold Svartinaggur bar sigur af hólmi sem og oft áður í hinum ýmsu keppnum. Hann var kosinn hr. Alheimur, hr. Evrópa og hr. Heimur og nú ríkisstjóri Kaliforníu. Fáir gera sér grein fyrir því, en Kalifornía er fimmta stærsta hagkerfi í heiminum og íbúatala (að því er vitað er og þar með ekki taldir ógrynni af innflytjendum af mexíkóskum uppruna) er litlar 35 milljónir manna. Þetta er nokkurn veginn eins og að vera forseti Argentínu, allt fullt af spanjólum, illa stætt fjárhagslega og u.þ.b. 35 milljónir íbúa.

Haukurinn hefur einnig velt fyrir sér hvort að Arnold sé tilbúinn að steikja glæpamenn í stólnum,því Kalifornía er nefnilega eitt þeirra ríkja sem viðheldur dauðarefsingunni. Þar hafa 510 manns verið teknir af lífi síðan 1893 og sem stendur sitja 622 á dauðadeild. Haukurinn vill þá að Arnold endurtaki eina af sínum bestu línum fyrir hvern og einn, annaðhvort þá ógleymanlegu línu úr Eraser: "Relax. You've been erased" eða hina ódauðlegu úr Terminator II: "Hasta la vista, baby!".

Haukurinn óskar Eikinni annars góðs gengis með erfitt verk.

Haukurinn hefur talað!