fimmtudagur, október 03, 2002

Skúr-verkir

Haukurinn hefur haft veður af því að Skhuravy (eða Ísleifur blogspot.com eins og hann kýs að kalla sig þessa daga) sé kominn með eigið blogg! Þessi síða var stofnuð sökum mikillar afbrýðissemi hans í garð Hauksins, sem heldur uppi þessari gæða síðu sem þu lesandi góður ert að lesa í augnablikinu. Haukurinn sér ekkert að því að litli maðurinn reyni fyrir sér á leikvelli stóru strákanna en grey skinnið mætti nú alveg gefa lesenda sínum kost á því að kynna sér gæða skrif Hauksins með því einfaldlega að linka hana á síðu sinni.....

Haukurinn er snúinn aftur eftir leiðindi Noregs.......

Haukurinn hefur talað!