fimmtudagur, desember 05, 2002

RDS af Hauknum

Haukurinn sér í fréttum að stórauknum útflutningi íslendinga til Kína halda engin bönd, því nú hefur verið hafin útgáfa íslenskra bóka í Kína. Fyrsta ritið verður Salka Valka eftir Halldór Laxness - skyldu þeir skilja Laxness betur en nokkrir aðrir???

Haukurinn sér ennfremur í fréttum að úthlutun listamannslauna næsta árs er lokið. Meðal þeirra fjölmörgu sem hljóta 1,6 milljón króna er Þráinn Bertelsson. Hauknum er spurn hví svo sé. Ætli það séu meinfyndnir pistlar hans í Kemur-annan-hvern-dag-blaðinu? Ekki eru það blessaðar lífa-myndirnar hans.....! Haukurinn ætti að hljóta listamannslaun fyrir eiturskörp skrif sín á hið sívinsæla blogg sitt, Baul og Vitleysa.

Haukurinn er sjóveikur eftir að hafa séð hið nýja útlit bloggs Ormsins (www.sverrirg.bloggspot.com). Hólí Krapp!!!!!

Það er vont veður á Íslandi - SO WHAT ELSE IS NEW?????????

Mundinn tuðar um hluti sem Hauknum finnast ómerkilegir...... www.svanson.net. Það virðist vera þróunin að því menntaðara sem fólk verður þeim mun minni hópur hefur áhuga eða skilning á því sem það tjáir sig um.

Haukurinn er pirraður af lestri bóka. Mundinn hefur mikið til síns máls......

Haukurinn hefur talað!



miðvikudagur, desember 04, 2002

Ísland best í heimi!

Haukurinn gat ekki annað en hlegið þegar hann rakst á frétt á vísir.is sem sagði frá sölu æðardúnssænga í Kína. Þar segir frá því að Kínverjar séu óðir í sængur með íslenskum æðardún, og sem stendur séu 5 sængur til í Kína! Enn fremur séu þær uppseldar í verslunum!!
Þegar Haukurinn hélt að nú væri nóg komið rakst hann á þá staðreynd að íslensk æðardúnsframleiðsla er u.þ.b. helmingur af heimsmarkaðsframleiðslunni og verðið per sæng á almennum markaði í Kína er u.þ.b. 1,2 milljónir króna sem eru samkvæmt bloomberg.com 117,061.1640 kínversk renmimbi.

Það fór hinsvegar í Haukinn að Þjóðverjar framleiða sængurnar fyrir okkur! Af hverju erum við ekki framleiðendur líka? Hauknum er spurn...?

Haukurinn verður fremja stutt blogg fram að prófum. Hann á nefnilega að vera að lesa.

Haukurinn hefur talað!

P.S. Bíllinn minn. Ég elska bílinn minn. Renault Hauksins er kominn í lag!!!!