mánudagur, mars 03, 2003

Haukurinn er ekki elllefu ára!

Haukurinn var að lesa grein eftir 11 ára stúlku um virkjun við Kárahnjúka. "Ég fór alltaf að veiða með afa mínum og sleppti fiskunum.....ef virkjunin verður byggð þá drukkna allir fiskarnir...." sagði barnið. Haukurinn hefur lagt kalt mat á greinina og telur að annað hvort hafi mamman, sem er líklega kennari, pabbinn, sem er líklega leikari, eða barnið, sem er hálfviti, skrifað greinina. Slíkar greinar flokkast undir tilfinningaklám hjá Hauknum.

Haukurinn heyrði einnig í ansi hreint "skynsömu" ungu fólki á Bylgjunni áðan. Þau voru forsvarsfólk www.cannab.is og eru einarðir stuðningsmenn lögleiðingar cannabis efna. Eymingja greyin, sátu þarna og hoppuðu í kringum spurningar fríðra spyrla eins og Vala Flosa. "Cannabis er mun hættuminni en alkóhól......af hverju að banna þetta en leyfa kaffi....." sömu vitgrönnu rökin og SUS menn héldu frammi þeir hetjur þeirra riðu um héruð. Æ greyin.....

Haukurinn hefur talað!