þriðjudagur, febrúar 07, 2006

"Þið munuð öll, þið munuð öll, þið munuð öll deyja. Þið munuð stikna, þið munuð brenna."

Jæja, nú er það endanlega að koma í ljós hversu djúpt danir eru sokknir í saurinn. Ekki nóg með að hinn múslimski heimur hafi sett allskyns boð og bönn gagnvart vörum og þjónustum dana, heldur hafa þeir einnig hafið að bera eld að sendiráðum þeirra víðs vegar um heim. Eitthvað gekk það erfiðlega hjá þeim í Líbanon (sem annars er alls ekki þekkt fyrir ofstækisfulla hegðun...) þar sem ofbeldismönnunum tókst ekki að brenna sjálft sendiráðið, þó svo þeim hafi tekist að kveikja í byggingunni sjálfri, og kostaði það einn gjörningsmanninn lífið. Sá hinn sami hafi ásamt félögum sínum kveikt í tveim fyrstu hæðum hússins, og síðan haldið á þá þriðju til að halda áfram uppteknum hætti. Ekki tókst betur en svo að sökum eldhafsins hafði hann þann eina kost í stöðunni að stökkva út um gluggann á þriðju hæð, og því fór sem fór.

Eftir því sem Haukurinn veit þá er þetta eina dauðsfallið sem beint er hægt að tengja við Múhameðsteikningauppþotin.

Hérlendis er fátt sem kemst að í fréttum annað en þessi mikla ólga sem teikningarnar ullu, sem er auðvitað vel skiljanlegt þar sem danir hafa ekkert sem nálgast Silvíu Nætur-Gate skandalinn á skandalmælinum. Haukurinn vonar að það náist sátt í málinu og að íslenska þjóðarsálin geti jafnað sig af þeim miklu sárum sem málið hefur valdið henni. Kannski er hægt að tala við frönsku læknana sem hjálpuðu konunni sem missti andlitið?

Annars, svo að Haukurinn haldi áfram að baula um þetta blessaða skopmyndamál, þá eru danir farnir að velta fyrir sér að kíkja á hvernig málum er háttað varðandi landvistarleyfi þessara blessuðu múslimsku imana (hálfgerðir æðstuprestar hins danska múslimasamfélags). Þannig er mál með vexti að þeir eru nefnilega margir hverjir ekki með danskt ríkisfang. Dönum finnst það svoldið súrt að þeir séu tilbúnir að hirða tékkann sem þeir fá sendann, en nýta hann svo til þess að grafa undan danska ríkinu erlendis. Þeir eru á því að senda jafnvel imanana bara heim aftur fyrst að Danmörk er svona slæm, frekar en að halda uppi einhverjum skeggjuðum uppreisnarmönnum. Haukurinn er ekki fjarri því að danir hafi sitthvað til síns máls.

Haukurinn hefur talað – þó hvorki um spámanninn Múhameð né Sigga Storm!