fimmtudagur, júní 03, 2004


Skál er vel við!
Haukurinn hefur hafið þjór.....enda á hann kaldan bjór! Góðar stundir!
Haukurinn hefur myndað! Posted by Hello

miðvikudagur, júní 02, 2004


Verkefni...smerkefni.....Haukurinn hefur lokið verkefnavinnu.....skilafrestur til hádegis á morgun.....að því loknu verður opnaður einn öl.....Haukurinn hefur myndað! Posted by Hello

mánudagur, maí 31, 2004

Læramos....lát taktinn taka þig föstum tökum!

Haukurinn er staddur í skólanum á öðrum degi hins hvíta sunnudags. Haukurinn var hér einnig á föstudag, laugardag og hinn eina sanna hvíta sunnudag. Haukurinn er að rembast við það að klára verkefni sitt ásamt sínu föngulega fylgiliði. Búlgarinn náði að eyða út tveimur þéttskrifuðum blaðsíðum af sínu eigin efni og pólverjinn hefur ekki borðað í tvær dægur. En fátt er svo með öllu illt að eigi boði eitthvað gott! Haukurinn sér loksins fram á lok þessarar annar og stefnir hraðbyri í sumar og sól.

Haukurinn biður lesendur vel að lifa og sendir þeim að lokum hlekk þennan , þar sem fólk getur fundið sér margt til dundurs. Haukurinn mælir sérstaklega með "Ballarnefninum"...

Haukurinn hefur talað!