þriðjudagur, júní 07, 2005

NÅ!

Haukurinn situr sem stendur enn fyrir framan tölvuskjáinn við skriftir og yfirferð. Verkefnið er við það að verða tilbúið, eftir þó nokkra yfirsetu og ófáa kaffidropana. Hópsfélagarnir eru að verða eilítið þreyttir en margt er ennþá ógert. Haukurinn hlakkar til þess að fleygja sér í rúmið þegar heim er komið og hvíla í þónokkra tímana. Haukurinn nennir þessu ei lengur. En situr samt enn.

Haukurinn hefur talað!