laugardagur, júlí 22, 2006

"Til hvers segullinn sé hér? Veit sá sem ekki spyr: Til að vinir mínir í vestrinu viti um dauðann fyrr. "
Segulstöðvarblús
Bubbi punktur 15
Haukurinn afsakar bloggleti sína. Löngu er liðið hin fyrrnefnda prófapása Hauksins og hefur Haukurinn öngvar afsakanir fram að færa fyrir leti sinni, aðrar en þær að hann er upptekin við störf sín hér í Fjarðabyggð. Margt hefur drifið á daga Hauksins, en þar eð hann hefur undirritað trúnaðaryfirlýsingu getur hann lítið tjáð sig um hvað um er að ræða.
Haukurinn hyggst bæta fyrir leti sína þegar síðar dregur á sumarið og skella upp svo sem einum eða jafnvel fleiri textum.
Haukurinn kveður að sinni.
Haukurinn hefur talað!