laugardagur, janúar 20, 2007

Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Drengur Hauksson, í borg Ála. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í ungbarnarúm.
Lúkasarguðspjall, uppfært fyrir árið 2006.
Haukurinn er upptekinn. Eitt stykki erfðaprins ofan í eitt stykki prófverkefni er ekki góð blanda. Svefn er fyrir .... tja....ekki nýbakaðar mæður allavega, en Haukurinn fær góða sex tíma á nóttu, þó ekki í samfelldum svefni.
Haukurinn hyggst bæta inn myndum, textum og öðru góðgæti við tækifæri.
Æ....hér er smá preview.

Haukurinn hefur talað!