föstudagur, júní 18, 2004


Æm a líder karl!

Haukurinn er fastur í þáttaröðinni um drengina frá Angora. Þáttunum má líkja við hina íslensku Fóstbræður nema að því leiti að drengirnir frá Angora leika sér að því sem gerir danskt þjóðfélag sérstakt, nefnilega hlutum eins og hreimum mismunandi landsvæða, vaxandi áhuga á hjólreiðum og hinum sérstöku bændum sem byggja landið flata. Haukurinn hvetur lesendur til þess að kíkja á drengina, en alla þætti þeirra má finna á netinu. Nefnilega hér!

Haukurinn hefur myndað!  Posted by Hello

mánudagur, júní 14, 2004

Elskan þú ert fullkomin tía!

Enn og aftur hefur tölustafur haft mikil áhrif á daglegt líf Hauksins. Haukurinn fékk í dag úrlausnir tveggja prófa og kom í ljós að hann stóðst með láði - eða allavegna tíu í einkunn. Haukurinn er mjög kátur og hérmeð kominn í sumarfrí. Haukurinn er farinn að drekka öl og horfa á evrópukeppnina í fótbolta!

Haukurinn hefur talað!