fimmtudagur, maí 16, 2002

Haukurinn reyndi að hjálpa sinni ástkæru að stofna slíka gæða-síðu sem ofangreind er, en viti menn, allt kom fyrir ekki og allt er í fokki!

Blogger.com er engan veginn að standa sig og er Haukurinn að drukkna í allskonar tæknirugli!

Haukurinn hefur talað!

mánudagur, maí 13, 2002

Tékk it!

Haukurinn hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að Svart-Hvíti maðurinn hyggist gera strandhögg á vora ástsælu eyju. Sá hinn sami safnar Volvo-um og er alltaf í hermanna leik. Nafn hans er Kolur Power. Ef þið, kæru lesendur, verðið hans varir þá fara samtökin Seltjarnarnes-Palestína-Breiðholt þess á leit að þið hringið í síma 8006043 og biðjið um Nínu.


Lilli klifurmús er alltaf að príla. Núna er hann kominn hálfa leið upp Mt Allraefst og gengur....afsakið prílar vel. Þegar Hong, fréttarritari Hauksins í Trompet, spurði Lilla af hverju hann væri að öllu þessu klifri þá svaraði hann "ég nenni ekki að vinna í Útilíf!"


Valur tapaði í úrslitum Íslandsmótsins í hnoðbolta. Hú kers !?!


Fjöldamorðingi í Finnlandi er týndur. Hann fékk að fara heim til sín í heimsókn en hefur enn ekki skilað sér í fangelsið aftur. Haukurinn fór á stúfana og komst að því að Finninn knái, eða Juha eins og hann heitir víst, kýs frelsið fremur en fangelsið. Aðspurður tjáði hann Hauknum að bæði væri betra sauna-bað heima hjá ömmu hans og svo gæti hann fengið þar allan þann vodka sem hann vildi. Finnskir ráðamenn eru ráðþrota!


Haukurinn las það í mogganum.is að Homma-flokkurinn í Hollandi hefði aukið fylgi sitt eftir að forystumaður hans, stjórnmálamaðurinn Pim Fortuyn var myrtur í síðustu viku. Haukurinn hefur staðgóðar upplýsingar þess efnis að þeir SUS menn (og kona) hyggist reyna þessa framboðstaktík í komandi borgarstjórnarkosningum og munu þeir (og kona) myrða Björn Bush! Þeir eru þess fullvissir að þessi gjörningur muni tryggja d-lista borgina.


Síðast en ekki síst, þá hafa Hauknum borist þær fregnir að Diane Pretty, gúrkan sem vildi fá að drepa sig, sé látin. Maður hennar, Brian Ugly, mun halda áfram málaferlum til þess að kona hans geti loks bundið enda á eigin líf.



Haukurinn hefur talað!!!

sunnudagur, maí 12, 2002

Djamm

Sit hér einn, Haukurinn, í góðum fíling í góðu partýi. Alllir fulllir og gott djamm!

Ísleifurinn kom ekki - var með meiddar tennur. Æ, Æ voða slæmt!

Haukurinn er að djamma á fullu og er fullur!

West Side Massive!

Guðni ruglar,Óskar bullar og einhver reynir við konur!

Gott Djamm!!!!!

Haukurinn hefur talað!!!!