miðvikudagur, febrúar 04, 2004

Rauða hægri höndin

Haukurinn er byrjaður aftur í skólanum eftir langa pásu. Fyrirlestrarnir koma í röðum og bókakaupin kalla. Haukurinn hlakkar ekki til þess að þurfa að blása tugum þúsunda í bókakaup, en svoleiðis verður það bara að vera.

Haukurinn skemmti sér kostulega yfir viðbrögðum bandaríkjamanna yfir brjóstasýningu Janet Jackson. Undir hálftíma skemmtuninni sem átti sér stað á Ofur skálinni greip Hr. Timburstöðuvatn í búning frú Jackson og út valt súkkulaðitúttan - hann hefði kannski frekar átt að syngja "I'm sorry miss Jackson....." ;). Haukurinn sér ekki hvað er stóra málið. Brjóst eru almennt talin eðlilegur partur af líffærum kvenna og frekar falleg sem slík. Eftir endalausa bunu af konum í búningum sem skilja lítið eftir fyrir ímyndunaraflið þá var það kærkominn bónus að fá að sjá brjóst Janettar.

Hér í danmörku stefnir allt í upplausn í undirheimunum. Bifhjólabullurnar Englar Helvítis hafa enn á ný stofnað til vandræða en í stað þess að ráðast á Glæpamennina (Banditos) þá hafa þeir sett stefnuna á gengi minnihlutahópa. Þessir hópar berjast nú á banaspjótum og hafa mál síðast komið upp í Óðinsvéum. Haukurinn fagnar því að búa í sveitinni, þar sem hér er ábyggilega lítill markaður fyrir eiturlyf og vændi. Annars skellti Landsbyggðarböllurinn fram ágætis kenningu um bifhjólabullur (eða bækera) um daginn, þar sem hann hélt því fram að það væri algerlega ómögulegt að vera svalur á dönsku. Þó svo að upp að manni gengi 200 kílóa, tveggja metra risi í leðurklæðum með hafnaboltakylfu í einni hendi og sveðju í hinni, þá hætti svalleiki hans að virka um leið og hann byrjaði að ógna á danskri tungu. De bor en bager på nørregade, han bager kringler og julekager!

Út frá sömu pælingum komust félagarnir að því að sömuleiðis er illmögulegt að vera kynþokkafullur á dönsku, en það er allt önnur ella.

Haukurinn hefur talað!