fimmtudagur, maí 09, 2002

Heyr á endemi!

Haukurinn fór nýverið í hús hinna kviku mynda – ekki einu sinni heldur tveim sinnum. Þar sá hann fyrsta myndina um köngulóadrenginn Lóa. Var sú kvika mynd mikil skemmtun og hafði Haukurinn mikið gaman af henni ásamt spúsu sinni. Köngulóardrengurinn sveiflaði sér eins og Tarzan milli húsa og stundaði annarlegt BDSM kossaflens með nágranna sínum Maríu Jönu. Græni púkinn – sem reyndar er líka annað nafn Halldórs Ásgrímssonar – reyndi síðan að skemma stemminguna og leggja Njú Jork borg í eyði. Allt var þetta í samræmi við stefnuskrá Framsóknarflokksins!
Haukurinn veitir Lóa tvo og hálfann bjór!

Seinni kvika myndin sem Haukurinn sá fjallaði um pakistanska-svarta manninn Alfreð Gjé. Sú kvika mynd var einnig hin mesta skemmtun og ekki skemmdi fyrir að Hauknum höfðu borist fríir miðar á téða sýningu. Líklegast hafa eigendur sýningarhúsanna ætlað að múta Hauknum – en það er allskostar ómögulegt – og lét Haukurinn eigi blekkjast! Hauknum var boðið sýndar-öl, Miller að nafni. Eigi átti það í fullu glasi við Carlsberg – sem er eina ölið sem Haukurinn kýs.
Þar sem eigi er farið að sýna þessa kviku mynd fyrir sauðsvörtum almúganum var þar samankominn háaðall íslensks samfélags. Haukurinn sá allskyns dýrategundir þar sem líklegast hafa fylgt eigendum sínum á staðinn, þar voru m.a. einn svartur maður í konulíki, fimm massabola-ljósabekkja-selfyssingar og tvær gamlar konur.
Eigi skemmdi þessi dýragarður stemmingu Hauksins, sem hlóg hátt og dátt að ævintýrum Alfreðs Gjé. Sá hinn sami fór mikinn í allskyns viðrekstrar og brjósta bröndurum.
Haukurinn veitir Alfreð Gjé tvo bjóra!


Haukurinn hefur talað!