fimmtudagur, maí 09, 2002

Hnoðboltafréttir

Haukinum hefur borist til eyrna frá lausapennanum Steininum að kvennabreytingar séu í vændum hjá kvennaliði Gróttu/KR. Alla Gúrkan, aðalskytta Gróttu/KR, hefur víst flutt til Vestmannaeyja.

Að sögn Steinsins var ástæðan sú að frystihúsið í Eyjum býður víst upp á betri hnífa fyrir sínar frystihúskellingar. Alla var víst komin með sinaskeiðabólgu af flökunaraðstöðunni úti á Granda.

Betri úlnliður – betri hnoðboltaskot!