þriðjudagur, apríl 30, 2002

Það á að varða leyfisveitingu að eignast barn!

Einhver besti puntkur sem ég hef heyrt í kvikmynd var þegar Laurence Fishburn sagði "Any fool with a dick can have a child but it takes a man to be a father!".
Persónulega finnst mér að fólk ætti að gangast undir hæfnispróf áður en það fær leyfi yfirvalda til þess að geta börn. Þessi skoðun mín styrkist í trúnni þegar ég les yfir síðustu úrskurði mannanafnanefndar - sem vissulega er úr-sér-gengið ríkisbákn en ekkert við því að gera.

Hver með réttu viti skírir barnið sitt Kristall, Irmý eða Dimmblá????
For fuck's sake!!!! Kristall? IRMÝ???? Dimmblá??? Síðast þegar ég heyrði orðið dimmblá þá var það í tengslum við tölvuna sem skúraði gólfið með Rússkí Karamba skáksnilling! Er ekki allt í lagi? Af hverju eru nöfn eins og Jón eða Ólafur svona út úr myndinni? Ég held að fólk sem gerir börnunum sínum þetta eigi hreinlega skilið að vera lamið í hausinn með borðstofuborði. Þetta er hreinlega alveg ótrúlegt. Það mætti halda að þetta fólk sæti í hring með stóra jónu og benti svo á hluti sem það sæi í kringum sig. Þvílíkir erki-fávitar!

Baul dagsins!