fimmtudagur, maí 09, 2002

Bréf til lesanda

Með ósk um svar!

Kæri vanviti á gráum Musso!

Ef þér þóknast þá þætti undirrituðum vænt að fá að eiga við þig nokkur vel valin orð við tækifæri. Þessi orð verða líklega Mae-geri, Mawashi-geri, Oi zuki og Gyaku zuki - og getur þú fengið merkingu þeirra útskýrða á heimasíðu Karatefélagsins Þórshamars. Ástæða þessa er ótrúlega glæfraleg notkun þín á stefnuljósi þínu á hringtorginu fyrir framan JL-húsið á þriðjudag. Þér ber að nota það til þess að GEFA TIL KYNNA hvert þú ert að fara - en ekki til þess að hafa eitthvað til þess að toga í þegar þú beygir út úr hringtorginu!

Þér kæri herra eruð fífl og dóni!

Haukurinn hefur talað!