miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Já danskurinn....hann er fífl...

Haukurinn er almennt á því að Danir séu eilitlir apakettir, eins og dæmin hafa sannað, t.d. myglaða mjölið sem þeir seldu okkur forðum og það að þeir voru tilbúnir að láta okkur í té fornhandritin sem þeir björguðu undan skemmdum. En eitt mega þeir þó eiga, þeir eru engan veginn jafn mikla kanasleikjur og við íslendingar, þ.e. þetta á móti þessu. Á meðan við berjumst við að hreinsa burt brúna kleinuhringinn framan úr andlitinu virðast danir þó vera örlítið minna viljugir að setja tungu á anusinn, jafnvel þó þeir sitji enn í Írak og bíði boðanna frá Tvöfalda Vaffi um það að mega fara heim líkt og skólastrákar í yfirsetu. Danskir þingmenn virðast að einhverju leyti reyna að sýnast vinna fyrir kaupinu sínu.
Uppfærsla
Það borgar sig greinilega ekki að birta hvað sem er á sinni persónulegu heimasíðu, tja...það eða vera gömul klámstjarna í stjórnmálum. Danskir kjósendur voru víst ekki alveg að fíla kosningaplaköt sem sýndu frambjóðendur með typpi í hendi (þó gamalt sé) snemma morguns - allavega ekki áður en þeir höfðu fengið fyrsta kaffibollann.
Haukurinn hefur talað!